Heiðrún Lilja Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) fer yfir stöðu útvegsmála í samtali við ViðskiptaMoggann. Heiðrún Lilja ræðir um skiptingu og tilfærslu á aflaheimildum og um tekjuskatt sjávarútvegsfyrirtækja.
Heiðrún Lilja segir að ekki hafi orðið mikil tilfærsla á kvóta á milli landshluta frá árinu 2003 til 2015. Sömuleiðis - ef litið er til tekjuskatts sjávarútvegsfyrirtækja á föstu verðlagi frá árinu 1998 til 2015 - sést að aflaheimildir hafa ekki verið að sogast til höfuðborgarsvæðisins eins og sumir halda fram. Þvert á móti segir Heiðrún Lilja.
Sjávarútvegur hafi ekki farið að skila hagnaði sem heitið getur fyrr en um aldamótin 2000. Á árunum 2003 til 2015 tók sjávarútvegurinn stórstíg skref í átt til meiri hagræðingar. Einstök byggðalög hafi vissulega farið halloka vegna tilfærslu á kvóta segir Heiðrún Lilja en nefnir að SAF líti svo á að nú séu færri en sterkari byggðakjarnar í hverjum landsnhluta. Að sama skapi hafi innviðir og samgöngur batnað til muna og því sé auðveldara fyrir fólk að sækja vinnu um lengri veg.
rtá
Nánar www.mbl.is