Í ljósi kvótamissis eftir sölu stærsta útgerðarfélagsins í Grímsey má rifja upp að Grímsey fékk inngöngu í Brothættar byggðir á síðasta ári. Unnið hefur verið að aðgerðaráætlun fyrir eynna samkvæmt verklýsingu verkefnisins og átti að kynna hana fyrir íbúum í október í fyrra.
Verkefnið hlaut nafnið Glæðum Grímsey. Það er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, EyÞings, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Akureyrarkaupstaðar og íbúanna sjálfra. Íbúaþing var haldið í fyrravor og þar kom m.a. fram að íbúar telji í Grímsey standi og falli með nýliðun í sjávarútvegi.
Þetta kom fram á vefnum akureyri.is í fyrrahaust en fyrr á árinum um vorið hafði tekist samkomulag um ráðstöfun 400 tonna byggðakvóta til þriggja ára sem útgerðirnar í Grímsey skiptu á milli sín í samræmi við fyrirliggjandi aflaheimildir.
Á akureyri.is kom einnig fram að í Grímsey hafi húshitunarkostnaður verið sérlega íþyngjandi en Grímsey er eina þéttbýlið á Íslandi sem kynnt er með olíu.