Útgerðarfyrirtækið Borgarhöfði í Grímsey hefur verið selt til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði og allur kvóti fyrirtækisins með. Fréttablaðið segir frá þessu. Fimmtán stöðugildi hverfa með fyrirtækinu en í Grímsey búa innan við 90 manns. Borgarhöfði er langstærsta útgerðarfyrirtækið í eynni.
Yfirlýsing Borgarhöfða hljóðar svo: „Reynt var til þrautar að ná samkomulagi við viðskiptabanka félagsins um niðurfellingar á gengistryggðum lánum en þegar ljóst var að ekki næðust ásættanlegir samningar voru rekstrarforsendur brostnar og við þau skilyrði gat rekstur ekki haldið áfram í óbreyttri mynd,“ segir í yfirlýsingunni.
Er þar átti við skuld við Íslandsbanka. Útgerðarfélögin þrjú í Grímsey skulduðu Íslandsbanka rúmar þrjú þúsund milljónir í upphafi ársins 2015. Eitt þeirra er Borgarhöfði. Hin tvö eru um helmingi minni, Sigurbjörn ehf. og Sæbjörg ehf, en þau náðu að semja við bankann um greiðslur. Fyrirtækin eiga þó í miklum rekstrarerfiðleikum. Hjá þeim starfa samtals um 16 manns.
Bankinn segist hafa samfélagsleg sjónarmið að leiðarljósi við úrlausn skuldamála félaganna þótt ekki sé niðurstaðan alltaf góð.