Kvótinn: einn seldi - þriðjungur flutti

Á Flateyri berjast íbúar fyrir tilveru sinni og framtíð þorpsins. Með tilkomu kvótakerfisins færðust örlög íbúanna í hendur þeirra sem réðu kvótanum.Um þetta fjallar kvikmyndin VEÐRABRIGÐI en hún verður sýnd um næstu helgi á Akureyri og síðar í Ríkisútvarpinu.
Myndin er heimildamynd, leikstjóri og handritshöfundur er Ásdís Thoroddsen en framleiðandi Hjálmtýr Heiðdal.
Flateyri við Önundafjörð er hefðbundið íslenskt sjávarþorp. Þar hefur tilveran byggst á útgerð og fiskvinnslu alla tíð. Með tilkomu kvótakerfisins færðust örlög þorpsbúa í hendur þeirra sem réðu kvótanum. Á síðustu fimm árum hefur íbúum Flateyrar fækkað um 35%. Unga fólkið hefur flutt burt um leið og atvinnutækifærum hefur fækkað.
Inn í persónulegar dramatískar frásagnir er klippt inn fréttaefni allt frá því að kvótahafi selur burt kvóta þorpsins dag einn í maí 2007 og hvernig reynt hefur verið síðan að koma fótum á nýjan leik undir atvinnustarfsemi í þorpinu; með stofnun nýs fyrirtækis sem gerði út á leigukvóta en fór í gjaldþrot upp úr íslenska efnahagshruninu. Þá kemur enn nýtt fyrirtæki til leiks sem virðist muni ganga vel. En annað kemur á daginn.

Hjámar Heiðdal, framleiðandi Veðrabrigða, segir í samtali við Hringbraut að myndin eigi að höfða til alls hugsandi fólks. Tengja margir við þá byggðalegu öfugþróun sem kvótakerfið hefur leitt af sér, þar sem hagræðingarkrafan virðist ofar öllu.