Kvöldferð um viðey með ara trausta

Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, mun leiða gesti um hina fögru Viðey og fræða þá um jarðsögu Reykjavíkur og nágrennis. Gangan hefst klukkan 19.30. Hún kostar ekkert og öllum er velkomið að taka þátt.

Ari Trausti mun einnig spjalla við gesti um náttúruvernd, hlýnun jarðar og þau spor sem mannfólkið skilur eftir sig á jörðinni.

Á sumrin eru aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15.  Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í Viðey áður en gangan hefst kl. 19.30. Siglt verður heim kl. 21.00. Gjald í ferjuna fram og til baka er 1.100 kr. fyrir fullorðna og 550 kr. fyrir börn 715 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Eldri borgarar fá 10% afslátt í ferjuna. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu en handhafar Gestakortsins sigla frítt.

Ari Trausti Guðmundsson stundaði nám í jarðeðlisfræði og jarðfræði í Noregi og hér heima. Hann hefur lengi verið sjálfstætt starfandi og t.d. sinnt ýmis konar faglegri ráðgjöf, fyrirlestrum, ferðaþjónustu, og dagskrárgerð í fjölmiðlum. Eftir hann liggur hátt á fjórða tug bóka um náttúruna, þar á meðal um eldvirkni, jökla, umhverfismál, ferða– og fjallamennsku en einnig hefur hann gefið út  fagurbókmenntir og sett upp afar áhugaverðar sýningar og söfn.