Hinn íslensk norski vafri, Vivaldi, var að gefa út sína 5.útgáfu. Meðal þess sem er nýtt fyrir notendur vafrans, er að með Vivaldi vafranum er hægt að stjórna því hvaða lýsingu þú vilt hafa á skjánum. Þá er einnig hægt að færa flipa á milli glugga, nýta sér lestrarhams hnapp og skrifa minnispunkta. Þessi 5.útgáfa Vivaldi, nefnist Vivaldi 1.5 og er gefin út í dag. Þetta þýðir að notendur vafrans sækja sér nýja uppfærslu á www.vivaldi.com og fá þannig að njóta þeirra nýjunga sem verið er að kynna.
Stofnandi Vivaldi vafrans er Jón von Tetzhner, en hann stofnaði Operuvafran á sínum tíma í Noregi. Vivaldi vafran er verið að þróa á starfsstöðvum Vivaldi í nokkrum löndum en að stórum hluta fer þessi þróun fram á Íslandi og í Noregi. Á Íslandi er Vivaldi staðsett í frumkvöðlasetrinu Innovation House á Eiðistorgi.
Kviknaði á perunni hjá Vivaldi.
Þessi nýjung Vivaldi, að geta stjórnað lýsingu vafrans, gengur þannig fyrir sig að notandinn fer í raun inn í heim Hue litaljósapera frá Philips. Notendur virkja Hue Vivaldi í þemastillingum og velur síðan hvaða ljósi Vivaldi á að s´tyra. Vafrinn samstillir litina í nærumhverfinu og litina á vafranum en þetta er bara eitt af mörgum atriðum Vivaldivafrans, sem vafrar eins og Chrome, Safari og fleiri hafa ekki.
„Þetta er bara fyrsta skrefið, en það má ímynda sér hvernig heimurinn væri ef við gætum t.d. fengið áminningu um tölvupóst í gegnum ljósaperu,“ útskýrir Jón von Tetzchner, forstjóri Vivaldi. „Við leggjum mikla áherslu á notendur geti sérsniðið vafrann að sínum þörfum og að hann sé sveigjanlegur. Tenging vafrans við snjalltæki eins og Philips Hue gerir Vivaldi kleift að taka virkan þátt í daglegu lífi fólks.“