„kvikmyndin“ rétt að byrja

Hagar eiga eftir að ná sér á strik og það er rangt að tengja afkomuviðvaranir fyrirtækisins eingöngu við komu Costco, segja sérfræðingar frá greiningarfyrirtækjum í Þjóðbrautarþætti kvöldsins.

Þrír mánuðir eru í dag frá því að verslunarisinn Costco opnaði á Íslandi og tvær búðir H&M opna innan skamms í Kringlunni og Smáralind. „Það er liðið svona 20 mínútur af kvikmyndinni, ef við tökum þá líkingu og við fylgjumst enn með framvindu mála. Erfitt er að segja til um framhaldið“, segir Bjarki Pétursson frá rannsóknar og greiningafyrirtækinu Zenter um Costco áhrifin en hann telur þau hafa verið ofmetin að sumu leyti.  Þar á bæ séu menn að læra á neyslu Íslendinga og rýrnun hafi orðið í búðinni á kjöti og ávöxtum. 

Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Verslanagreiningu bendir á að koma H&M mun breyta miklu, til dæmis mun búðin haga sér að vild en ekki samkvæmt reglum verslanamiðstöðvanna um útsölur, sem hefjast mun fyrr en hjá íslensku búðunum.  Hann segir ekki óeðlilegt að verðlag verði hærra hjá búðinni hér á landi miðað við á öðrum Norðurlöndum þar sem krónan sé mjög óstöðug.  

Bjarki og Kjartan Örn mæta á Þjóðbraut í kvöld kl.21 til Lindu Blöndal.