Eitt umdeildast má samtímans, kvótakerfið og auðsöfnun ráðandi útgerðarmanna verður til umræðu í fréttaskýringaþættinum Kvikunni sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld.
Þar takast Árni Gunnarsson. fyrrverandi sjómaður og fiskmatsmaður og Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins á svo hvín í tálknum. Ár ni er meðlimur í sóknarhópnum og ræðir meðal annars þöggun og misrétti kerfisins, en hann er mjög gagnrýninn á kerfið og vill breyitingar.
Þorsteinn heldur uppi vörnum fyrir kerfið sem hann segir þó ekki gallalaust. Hann vísar til sjálfbærni og hagsældar sem fylgi aflamarkskerfinu í núverandi mynd án kostnaðar fyrir ríkið eins og jafnan sé með sjávarútveg nágrannaríkjanna, þvert á móti njóti landsmenn góðs af útveginum í formi gjalda sem renni inn í sameiginlega sjóði.
Þórólfur Matthíasson, doktor í hagfræði og prófessor við Háskóla Íslands reynir að svara þeirri spurningu á mannamáli í þætti kvöldsins hvort kerfið sé hagsælt fyrir þjóðina. Hann ritaði doktorsritgerð um kvótakerfið og kemst í þættinum að þeirri niðurstöðu að útgerðarmenn telji að þeir hafi meira að segja um stjórn samfélagsins en góðu hófi gegni, makrílmálið sé til vitnis um það.
Kvikan verður frumsýnd klukkan 21:30 í kvöld og er áhugafólk um þjóðmál hvatt til að horfa á þáttinn, en þáttastjórnandinn, Björn Þor´láksson tekur góðfúslega við ábendingum frá áhorfendum að lokinni sýningu á netfanginu [email protected].
a