Í hinum óviðjafnanlega bíladelluþætti, Kíkt í skúrinn á Hringbraut í kvöld verður vel völdum Jagúörum strokið um kviðinn og kannski danglað feimnislega í annað framdekkið á þeim.
Áhorfendur fá sumsé að skoða skoða tvo Jagúarbíla, annan af e týpu árgerð 1969, þann eina 6 strokka sem er á götunni í dag. Sá seinni er með þrískiptan topp sem er meira en t toppur eða caeriolet toppur sem margir kannast ekki við. en aðeins voru framleiddir 5000 þúsund slíkir bílar og er þetta sá eini sinnar gerðar hér á landi. Aðeins eru 23 svona bílar eftir í Bretlandi.
Það er Ingvar Gissurarson sem leiðir áhorfendur um skúrinn og kynnir okkur fyrir þessum hefðarbílum frá breska heimsveldinu, en hann hálfpartinn sérhæfir sig í viðgerðum á breskum eðalbílum.
Þá verður aftur tekið hús á Hilmari Lútherssyni, en hann er einn af stofnendum Bifhjólasamtaka Lýðveldisins, Sniglanna 1984 og er snigill númer 1 í félagsskrá þeirra. Hann er búinn að vera með delluna síðan um 1950 og hafa á annað hundrað hjól farið í gegnum hendur þessa manns enda mikil virðing borin fyrir þessum snillingi hjá öllu hjólafólki.
Loks kynnast áhorfendur Blýfóti sem er merkilegur bílaklúbbur, en aðeins evrópskir bílar prýða klúbbinn enda margir magnaðir bílar þar á ferð. Áhorfendur fá að slást í för með þeim um Hvalfjörðinn og kemur á daginn að það er fátt skemmtilegra en að keyra með þessum skemmtilega kúbb um ægifagran fjörðinn.
Þátturinn Kíkt í skúrinn, sem er í umsjá Jóhannesar Bachmann er frumsýndur klukkan 20:30 í kvöld.