Af samtökum sérstakra sakleysinga

\"Þetta var vikan sem einkenndist af vinnudeilum og verkföllum. Vínbúðum var lokað vegna verkfalls starfsfólks, en sem betur fer var séð svo um að nóg væri til af áfengum drykkjum, bæði á veitingahúsum og í heimhúsum - ástandið er nógu slæmt í samfélaginu þó að þjóðin þurfi ekki að horfa uppá það bláedrú.\"

Á þessum orðum hóf Karl Ágúst Úlfsson þátt sinn Helgina á laugardagskvöld, en hann opnar hann alltaf á einskonar uppgjöri sínu við fréttamál síðustu daga - og honum er þar ekkert heilagt: \"En þrátt fyrir verkfall var hægt að afgreiða rauðvín með matnum á Kvíabryggju, en eins og við höfum fengið að sjá og heyra í fjölmiðlum undanfarið situr þar hópur af blásaklausum mönnum sem hafa orðið fyrir barðinu á siðleysi og mannvonsku sérstaks saksóknara. Fórnarlömbin á Kvíabryggju munu vera búin að stofna með sér félagsskapinn S.S.S. - Samtök sérstakra sakleysingja.\"

Karl Ágúst er með hugann við tukthúsið vestra: \"Við gátum lesið það í stóru blaðaviðtali að Ólafur Ólafsson í Samskip hefði verið dæmdur saklaus í fjögurra ára Cross-Fit. Aðrir útrásarvíkingar hafa fengið dóma upp á tveggja og hálfs árs jógabúðir, sextán mánaða handsnyrtingu og þriggja ára nudd og spa. Orðið „fangabúðir“ hefur líka fengið nýja merkingu, þar sem nú er farið að selja þar tískufatnað. Nokkurrar óánægju gætir þó meðal fanga yfir að vorlínan í fangafötum skuli ekki ennþá vera komin búðirnar,\" sagði leikarinn góðkunni og brast svo í söng um Draum fangans sem hægt er að skoða í klippu úr þætti hans inni á hringbraut.is.

Gamli Spaugstofumaðurinn getur sjaldan látið forsætisráðherra í friði: \"Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mun vera einn af merkustu feministum samtímans, samkvæmt erlendum heimildum. Samkvæmt sömu heimildum er Elvis Presley enn á lífi og býr á Selfossi og hópur af geimverum ætlar að ná völdum í Sjálfstæðisflokknum á næsta landsfundi.\"

Bankamálin bar náttúrlega á góma: \"Mesta gleðifrétt vikunnar var að nú er ríkið aftur að eignast Íslandsbanka. Jei! Gerum alla bankana aftur að ríkisbönkum! Jei! Þá getum við einkavætt þá alveg upp á nýtt! Jei! 2007 er rétt handan við hornið! Ooo, nostalgían - gömlu góðu dagarnir,\" sagði Karlinn og skellti í góm með þessum orðum. \"Og talandi um banka: Arion banki seldi vildarvinum sínum hlutabréf í Símanum á mun lægra verði en aðrir eiga kost á. Þessir vildarvinir hafa nú þegar hagnast um nokkur hundruð milljónir á þessum kaupum. Það er sannarlega munur að eiga góða vini,\" en með þessum orðum brast hann aftur í söng við teiknimyndarlagið kunna:.

ÞÚ ERT SKO VINUR MINN

JÁ, VILDARVINUR MINN

SÍMANN SKAL ÉG SELJA ÞÉR

ÞÚ FÆRÐ SÉRTÖK KJÖR, ÞAÐ ER GJÖF FRÁ MÉR

ÞVÍ ALVEG MORGUNLJÓST OG ÖRUGGT ER

AÐ ÞÚ ERT VINUR MINN

Því næstu fjallaði hann um þensluna: \"Samkvæmt fréttum þurfum við að flytja inn að minnsta kosti 5000 manns á næstu fjórum árum til að standa undir störfum sem ekki er hægt að manna öðru vísi. Við verðum bara að vona að ekkert af þessu fólki komi frá Albaníu, því þá þyrfti Útlendingastofnun að bæta verulega við sig starfsfólki til að hafa undan að senda þetta lið aftur úr landi.\"

Hann sér pólitíkina fyrir sér svona á næstu misserum: \"Nú er útlit fyrir að verðtryggð lán heimilanna hækki um 335 milljarða næstu misserin, en það er fjórföld skuldaleiðréttingin sem heimilin fengu ekki alls fyrir löngu, en eins og flestir muna var hún aðal kosningaloforð Framsóknarflokksins. Í kjölfarið á þessari verðbólguspá hætti flokkurinn við að afnema verðtrygginguna. Ástæðan er einföld: Ef verðtryggingin fær að halda sér verður hægt að lofa nýrri skuldaleiðréttingu fyrir næstu kosningar og þannig koll af kolli. Þar með er flokkurinn búinn að koma sér upp sjálfvirkri endurnýjun á kosningaloforðum, sem sparar auðvitað gríðarlega vinnu og heilabrot.\"

Að lokum ein sneið á Simma, þó það nú væri: \"Samkvæmt yfirlýsingum forsætisráðherra eru Íslendingar að slá heimsmet slag í slag með aðgerðum í loftslagsmálum, með vaxandi kaupmætti og velmegun í landinu, með hetjulegum efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar og fleira og fleira. Af hverju ráðum við ekki Simma til að lýsa íþróttaleikjum í sjónvarpinu? Með því móti yrðum við heimsmeistarar bæði í handbolta og fótbolta áður en við vissum af.\"

Helgina með Karli Ágústi má nálgast að hluta eða í heild hér á hringbraut.is.