Kvíabryggja: fangi kostar 5,3, milljónir

Hver fangi á Kvíabryggju, því fangelsi landsmanna sem hvað mesta athygli hefur vakið að undanförnu, kostar ríkissjóðs á sjöttu milljón á ári. Erfitt reynist þó að reikna allan kostnað við hvern fanga í afplánun vestur á Nesi.

Það var lesandi upplýsingasíðunnar Spyr.is, sem er samstarfsaðili Hringbrautar, sem sendi inn fyrirspurn um kostnað á hvern fanga á Kvíabyrggju í kjölfar umtalaðs viðtals við Al-Thani-fangana vestra og frétta dagana á efti.

Í svari Jakobs Magnússonar, fjármálastjóra Fangelsismálastofnunar segir að bráðabirgðarniðurstöður sýni að meðaltalskostnaður fyrir hvern fanga á Kvíabryggju sé um 5,3 milljónir króna. Hann segir hins vegar að í þeim kostnaði sé ekki allt upp talið, en utan þessa kostnaður eru útgtjöld vegna aðalskrifstofu Fangelsismálastofnunar sem sinni allri stoðþjónustu við fanga og fangelsi landsins, s.s. eftirlitshlutverki með fullnustu refsinga, öllu meðferðarstarfi, yfirstjórnar fjár- og starfsmannamála, öryggismála og tölvuþjónustu svo nokkuð sé nefnt. 

Lesendur eru hvattir til að nýta sér spurningagáttina Spyr.is og spyrja þar um hvað sem er sem tengist fréttum eða fréttatengdu efni sem vert er að fá svör við, en vefurinn sér um að fylgja þeim eftir.