Kvenréttindadagurinn er í dag

Hinn 19. júní er hátíðisdagur þar sem því er fagnað að þann dag árið 1915 fengur konur á Íslandi 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Þetta gerðist þegar konungur Íslands samþykkti nýja stjórnarskrá.

Barátta íslenskra kvenna fyrir þessum mannréttindum hafði þá staðið frá árinu 1885. Fyrst opinber krafa um kosnigarétt kvenna kom þó ekki fram fyrr en árið 1895.

Árið 1918 var svo 40 aldursákvæðið numið úr lögum. Kvenréttindafélag Íslands sem stofnað var árið 1907 gefur í dag út blaðið 19. júní sem er núna eitt elsta tímarit á Íslandi.

rtá