Kvennaþing er andstyggilegt lýðskrum!

Þráinn Bertelsson fyrrverandi alþingismaður rithöfundur og leikstjóri er harla ósáttur við þær hugmyndir sem hafa komið fram um að halda sumarþing á Alþingi sem eingöngu verði skipað konum.

Þráinn fjallar á á Facbook-síðu sinni um frétt Vísis þess efnis að Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Vinstri grænna hafi stungið á því að konur myndu klára störf þingsins á sumarþinginu, en alls óvíst er hvenær þinginu lýkur vegna langvarandi ósamstöðu um málaskrá þess. Hugmynd Lilju er áþekk nýlegri tillögu Ragnheiðar Ríkharðsdóttur þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins í þá veru að konur stjórnuðu þingstörfum það sem eftir er af kjörtímabilinu, en svo yrði kosið um það í næstu þingkosningum hvort körlum yrði hleypt aftur að.

Í fréttinni segir meðal annars: \"Lilju þótti ljóst að þeir karlmenn sem eru í forsvari fyrir ríkisstjórnina væru ekki starfi sínu vaxnir og því, í ljósi hátíðarhalda 19.júní, gæti það orðið lausn að konur tækju við stjórnartaumunum út sumarþingið.“

Þráinn stingur fast niður penna í Facebook-færslu sinni og sparar ekki stóru orðin: \"Hvaðan kemur þetta andstyggilega lýðskrum um að best sé að leggja niður lýðræðið og annað kynið - í þetta skiptið kvenkynið (\"vaskar konur\") - taki við stjórn landsins? Svona þvættingur mælist ábyggilega vel fyrir hjá fólki sem er veikt fyrir lýðskrumi en hugmyndin er andlýðræðisleg og stútfull af karlfyrirlitningu.\"

Skrifar þingmaðurinn fyrrverandi, en hann og Lilja Rafney deildu sama þingflokki á síðasta kjörtímabili.