Kvennaráð: píkan á okkur er yndisleg!

\"Konur hlaða alltof mikilli merkingu í orðið píka sem gerir það að verkum að þær njóta hennar ekki sem skyldi,\" sagði Ágústa Kolbrún Róberts sem var gestur Bjarkar Eiðsdóttur í Kvennaráðum á Hringbraut í gærkvöld.

Óhætt er að segja að umræðuefni þáttarins hafi verið harla óvenjulegt; nefnilega að heila það allra heilagasta, en Ágústa Kolbrún sem er jógakennari hefur sérhæft sig í að heila píkur sem felst ekki síst í því að fá konur til að aflétta skömminni af sköpum sínum og hætta að hugsa neikvætt um þennan mikilvæga líkamspart sinn.   

\"Píkan á okkur er yndisleg,\" áréttir hún í þættinum, \"því fyrir utan að færa okkur börnin getur hún gefið okkur yndislega fullnægingu sem skiptir okkur verulegu máli í daglega lífinu og auðgar það á svo margvíslegan hátt.\" Og svo bætir hún við: \"Svo er bara mjög góð lykt af píkunni okkar, þvert á það sem okkur hefur kannski verið innrætt.\"

Hún vill að þeirri merkingu sem fyrst komi upp í huga margra þegar minnst sé á orðið píka verði snúið við; orðið píka eigi að merkja eitthvað dásamlega fallegt í huga fólks.

Í þættinum kennir hún konum að heila píkuna á sér, en hægt er að nálgast þáttinn undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is svo og klippur úr honum á sama stað.