Heilun hins allra heilagasta er umræðuefni í sjónvarpsþættinum Kvennaráðum á Hringbraut í kvöld en óhætt er að segja að efni þáttarins sé fremur óvenjulegt og hafi líklega aldrei áður verið rætt af jafn miklu hispursleysi í sjónvarpi.
Umsjárkonan Björk Eiðsdóttir fær til sín jógakennarana Ágústu Kolbrúnu Róberts og Sunnu Dís Jónsdóttur til að ræða mikilvægi þess að aflétta skömminni sem sumar konur bera til skapa sinna, en alltof margar þeirra hugsi með neikvæðum formerkjum til kynfæra sinna af ástæðum sem ef til vill má rekja til karllægrar belgingsumræðu um þennan mikilvæga líkamspart.
Báðar telja þær að því aðeins að konur hugsi jákvætt og hlýlega til píkunnar sinnar geti þær stundað kynlíf af þeim ríka unaði sem það er ætlað að færa fólki. Í þessu efni gildi tengingin á milli líkama og sálar svo nándin verði sem mest í kynlífinu.
Þetta athyglisverða spjall hefst á Hringbraut klukkan 20:30 í kvöld - og er ef til vill ekki fyrir viðkvæmt fólk.