Sjálf kynhvötin er umræðuefni kvöldsins í sjónvarpsþættinum Kvennaráðum á Hringbraut í umsjá Bjarkar Eiðsdóttur en þættir hennar hafa vakið mikla athygli fyrir hispurslausa umræðu um kvennamál og samskipti kynjanna.
Gestir Bjarkar í kvöld eru Anna Tara Andrésdóttir útvarps- og tónlistarkona, Hugleikur Dagsson listamaður og Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur og blaðamaður, en til samans munu þau greina kynhvötina, mikilvægi hennar og fjölbreytni og ræða um ólíkar birtingarmyndir hennar frá einum tíma til annars.
Kvennaráðum hefur ekki verið nokkurt efni heilagt allt frá því þátturinn fór fyrst í loftið síðla febrúar í vetur. Síðasti þáttur var nokkuð umdeildur og vakti atlént umtal, en þar var fjallað um það hvernig hægt er að heila píkuna á sér.
Allir Kvennaráðsþættirnir eru til staðar inni á hringbraut.is.
Þátturinn í kvöld hefst klukkan 20:30.