Sögur um ástina og óhjákvæmileg uppgjör lífsins verða töfraðar fram á tónleikum Kvennakórsins Kötlu í Tjarnarbíó þann 22. febrúar næstkomandi. Tónleikarnir verða tveir. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 18.00 og hinir síðari kl. 20.30.
Kötlurnar ætla að flétta saman sagnaheim með kröftugum tónlistarflutningi og áhrifaríkri sviðsframkomu sinni sem mun láta engan ósnortinn. Kvöldið og stemningin verða þrungin af kyrjandi kvenorku en flutt verður tónlist sem hefur verið útsett af konum, tónlist eftir konur eða um konur. Kötlurnar taka hittara sem allir þekkja og fluttir hafa verið af Billie Eilish, Röggu Gísla, Björk, Todmobile, Eurythmics, Sigrid, Emilíönu Torrini og svo mætti lengi telja.
Kvennakórinn Katla samanstendur af um 70 listrænum konum sem fara ótroðnar slóðir í sköpun sinni. Kórstýrur eru Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir.