Breiðfylking kvenna hittist í dag og ákvað að bjóða fram í borginni í vor, segir í tilkynningu frá Kvennaframboði 2018 í gær.
„Markmið framboðsins er að setja femínísk málefni á oddinn í Reykjavík. Kvennaframboðið er umfaðmandi afl sem mun styðja við öll þau mikilvægu réttlætismál sem teljast femínísk“, segir enn fremur í tilkynningunni.
Kvennaframboðið er innblásið af kraftmiklum hreyfingum eins og #MeToo, #karlmennskan, hræringum í stéttarbaráttunni og eigin reynsluheimi. Stefnan er að bjóða fram afl sem boðar aðgerðir í málefnum sem tryggja öryggi, aðgengi og áhrif allskonar kvenna og jaðarsettra hópa í samfélaginu, eins og það er orðað.
Kvennaframboðið er framhald baráttufundar kvenna sem haldinn var á Hótel Sögu í fyrrahaust. Tilefnið var bakslag í jafnréttismálum eftir niðurstöður Alþingiskosninganna.
„ Þrátt fyrir að kynferðisofbeldismál hafi sprengt síðustu ríkisstjórn og kosningarnar farið fram í miðri #MeeToo byltingu, einni áhrifamestu kvennabyltingu okkar tíma, komust femínísk málefni varla á dagskrá í kosningabaráttunni. Við erum hér til að sjá til þess að slíkt gerist ekki aftur. Við erum hér til að sýna fram á að það er ekki áhugaleysi kvenna á stjórnmálum sem veldur því að konum fækkaði á Alþingi í vor.“
Hópurinn segir byltingu undanfara breytinga og á laugardainn 14.apríl verði Laugardaginn 14. apríl verður boðað til framhaldsstofnfundar þar sem konur með áhuga á þátttöku í sveitarstjórnarmálum eru hvattar til að mæta.