Konur eru ósmeikar við að fara í pólitík. Þetta kom fram í máli Sóleyjar Tómasdóttur fyrrverandi borgarfulltrúa VG í Reykavík í morgunþætti RÚV á Rás 2 fyrr í dag. Tilefni viðtalsins var fjölmennur fundur kvenna í gærkvöldi um kvennaframboð. Sóley boðar málefnvinnu og starfsdaga til að undirbúa kvennaframboð fyrir næstu sveitarstjórnakosningar.
Hringbraut leitaði til heimildarmanna innan VG sem allir gerður lítið úr því að Sóley Tómasdóttir væri að gera þetta á vegum VG. Eða að hún væri að gagnrýna vinnubrögð VG og skort á femínískum áherslum innan VG. Ekki vildu þeir heldur svara þeim ásökunum sem Sóley hefur beint til VG um að vinstri flokkarnir hafiu ekki sett kvenfrelsi á dagskrá. Sóley mun hafa sagt að meðan hún var í forystu VG þá hafi kvenfrelsi ekki verið sett á dagskrá VG sem alvöru viðfangsefni hjá VG.
Óhætt er að draga þá ályktun að þeir liðsmenn VG sem eru utan VG 101 Rey grasrótarinnar séu að skoða gaumgæfilega hvað fór úrskeiðis í kosningabaráttunni hjá VG í nýafstöðnum kosningum. Nægir þar að vísa í skrifa Björns Vals Gíslasonar fyrrum varaformsnnas VG. Þá mun oddviti VG þurf að sitja fyrir svörum og skýra hrakfarir VG í kosningunum.
Skoðanakannanir fyrir kosningarnar sýndu nefnilega yfirburðafylgi VG og einkum var því haldið fram að konur myndu kjósa VG. Það reyndist ekki vera rétta. Líkast til mun forystusveit VG skoða vandlega hvaða ógn VG stafar af boðuðu kvennaframboði. Nýtt afl til vinstri er að mótast. Forysta VG í Reykjavík er snögglega með storminn í fangið sagði heimildarmaður Hringbrautar. Innanbúðaruppreisn er í vændum sem er nokkuð sem VG í Reykkjavík ræður ekki vel við sagði heimildin.