Kveður evru og esb endanlega í kútinn

 

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að slit Íslands við ESB hafi engin neikvæð áhrif haft á utanríkisviðskiptastefnu landsins. Hans reynsla sé að ríki heimsins sýni því mikinn skilning að Ísland vilji standi utan ESB og sé því þveröfugt farið sem spáð hafi verið að Ísland yrði fyrir álitshnekki vegna slitanna.

Þetta kom fram í ræðu sem Bjarni flutti við upphaf landsfundar. Hann kom víða við í erindi sínu, ræddi flóttamannavanda ESB-ríkjanna og ýmis mönnur vandamál. Lítið traust væri á stofnunum Evrópusambandsins.

Bjarni sagði að ef einhver væri enn að spyrja sig hvort Íslendingar sem sjálfstæð og fullvalda þjóð hefði hag af því að tryggja hagsmuni landsmanna án þess að ganga í „fleiri ríkjasambönd“ eða „kasta gjalldmiðlinum“ íslensku krónunni felist svarið í góðum verkum ríkisstjórnarinnar og Sjálfstæðisflokksins.

Bjarni fór víða í ræðu sinni en gat þess meðal annars að „heilbrigt“ eignarhald yrði að fást að Arion banka, ríkið eigi að eiga um 40% hlut í Landsbankanum sem verði á markaði en ef Íslandsbanki endi hjá ríkinu verði að undirbúa sölu til nýrra eigenda.

„Gleymum því ekki að bankastarfsemi er ekki áhættulaus rekstur, það er samfélagsbankarekstur ekki heldur,“ sagði Bjarni og uppskar lófaklapp. Hann sagist tala fyrir jafnræði og gagnsæi og mestu skipti að eignaraðild að bönkunum yrði dreifð, stærð bankanna sé orðin of mikil en umbætur kunni að taka tíma.