Kveðst vera lofthræddur

Leifur Örn Svavarsson leiðsögumaður hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum sem komist hefur á topp allra hæstu fjalla heimsálfanna og stigið sömuleiðis fæti á báða pólana kvaðst í viðtali við Sigmund Erni í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl fyrr í kvöld vera lofthræddur að eðlisfari. Sá ótti hefði allt frá því hann byrjaði fyrst að ganga á fjöll á fjórtánda ári kennt honum að fara varlega. Mikilvægt væri að bera mikla virðingu fyrir náttúrunni þegar maðurinn tækist á við hana við erfiðustu skilyrði – og þá kæmi lofthræðslan að góðum notum, enda væri hún í reynd ekkert annað en skynsemi.
Hann sagði í viðtalinu að það væri afar mikilvægt að undirbúa hverja fjallgöngu af kostgæfni og gera ráð fyrir öllum mögulegum uppákomum í ferðinni. Einu sinni hefði hann farið gegn eigin vilja í leiðangrum af þessu tagi, en það var þegar hann sem leiðsögumaður fór með erlendan gest þvert yfir Vatnajökul í febrúarmánuði þegar allra veðra er von. Hann lét að lokum til leiðast af því ferðin var eiginlega æðsti draumur útlendingsins; að komast yfir stærsta jökul Evrópu um hávetur. Allt hefði síðar gengið eftir sem Leifur óttaðist; kolbrjálaður sviðrandi hefði verið alla leiðina sem rifið hefði tjöld og súlur og fatnað í tætlur og þeir að lokum komist við illan leik til byggða. Þessi ferð hefði kennt Leifi mörkin á milli skynsemi og fífldirfsku.

Hægt er að skoða klippu úr viðtalinu við Leif hér .