Kveðst orðlaus yfir umskiptum íslands

Lögfræðingurinn Lee Buchheit, sem var íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar við losun hafta, segir að stöðugleikaskatturinn sem lagður verður á slitabúa fallinna fjármálastofnana muni nægja til þess að greiða niður þriðjung af skuldum ríkissins. 

Í viðtali í Fréttablaðinu í dag segir hann að það muni spara þjóðina um 30 til 40 milljarða króna í vaxtakostnað á ári: \"Maður er svona eiginlega orðlaus yfir þessu,“ sagði Buchheit í viðtali við blaðið um þessa niðurstöðu en hann telur ólíklegt að kröfuhafar höfði mál vegna skattsins og telur að það muni ekki þjóna hagsmunum þeirra við að endurheimta fé sitt úr höftum landsins.

Bucheit segir að niðurstaðan verði til þess að ríkissfjármálin stórbatni og lánshæfismatsfyrirtæki horfi til þess: \"Mig grunar að eftir tíu ár muni Harvard Business School vera með rannsóknarefni um Ísland,“ sagði hann svo í viðtali við blaðið í dag.