Kveðst hæfur í makrílmálinu – svona eru tengsl kristjáns við samherja sem segist engra hagsmuna að gæta

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og sjávarútvegsráðherra, heldur fram í skriflegu svari til Stundarinnar að hann hafi ekki óhæfur til að leggja fram og mæla fyrir frumvarpi um kvótasetningu á makríl, þrátt fyrir tengsl sín við Útgerðarfélagið Samherja og hagsmuna fyrirtækisins vegna málsins. Þetta átti sér stað í fyrrasumar. Kristján hefur verið sakaður um að hygla Samherja vegna málsins.

Kristján Þór sagði þegar Samherjamálið stóð sem hæst:

„Ég vil nefna það hér að ég á engra sérstakra hagsmuna að gæta gagnvart þessu fyrirtæki. Ég á engin tengsl við þau önnur en að hafa um áratuga skeið þekkt einn aðaleiganda þess og þáverandi forstjóra. Það var mat mitt að þau tengsl yllu ekki vanhæfi mínu í málum sem vörðuðu ekki mikilsverða hagsmuni.“

Líkt og Stundin hefur áður fjallað um eru tengsl Kristjáns við Samherja margvísleg. Kristján Þór hitti namibíska samverkamenn Samherja sem tóku við mútugreiðslum frá fyrirtækinu. Á þeim tíma var hann að hitta vin sinn og forstjóra Samherja í persónulegum erindagjörðum.

Einnig er frægt símtal Kristjáns, sem hringdi í Þorstein Má, eftir að Samherjamálið kom upp og spurði hvernig honum liði vegna málsins.

Þá sat Kristján Þór í stjórn Samherja og var einnig um tíma stjórnarformaður fyrirtækisins. Hann stundaði sjómennsku á togurum Samherja milli þess sem hann var á þingi. Þá sat hann í stjórnum fyrirtækja sem Samherji keypti og líkt og kemur fram í Stundinni var hann bæjarstjóri í þremur bæjarfélögum þar sem Samherji hefur haft gríðarmikil áhrif.

En tengslin eru engin að mati Kristjáns Þórs.