Tilkynning Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að hann hafi ákveðið að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands í sjötta sinn hefur að vonum vakið mikla athygli í dag.
Nokkurs pirrings hefur víða gætt á samfélagsmiðlum vegna ákvörðunar forsetans en hann á þó stuðningsfólk víða og þannig hefur þökkum rignt yfir Dorrit Moussaieff á Facebook-síðu forsetafrúarinnar síðdegis.
Athygli vakti fyrir fjórum árum þegar Þóra Arnórsdóttir bauð sig fram gegn Ólafi Ragnari að þá gerðust forsetahjónin mjög virk á Facebook en eftir að forsetinn hafði sigur hafa Facebook-síður þeirra lítið verið uppfærðar og mest hefur til dæmis borið á vírusum á síðu Dorrtiar en í dag hafa góðar kveðjur tekið að streyma þar inn.
Og ánægjan leynir sér ekki hjá þeim sem hafa komið við á Facebook hjá Dorrit en meðal kveðjanna sem hún hefur fengið eru þessar:
„Takk kæru hjón gott að vita að þið ætlið að vera áfram.“
„Þetta er gleðidagur, þú Ólafur Ragnar Grímsson forseti minn og Dorrit Moussaieff forsetafrú, standið með ykkar þjóð.“
„Er virkilega ánægð! Takk fyrir.“
„Mikið er ég ánægð með ákvörðun Ólafs Ragnars, fær klárlega mitt atkvæði. Takk kæru hjón. Þið eruð þjóðinni til sóma.“
Elsku hjón. Hjarta mitt er fullt af gleði á þessum fallega degi. Dásamlegustu fréttir sem ég hef heyrt í langan tíma. Húrra húrra húrra.“