Í stefnunni, sem 207 einstaklingar og löhgaðilar eiga aðild að er þess krafist að viðurkennd verði skaðabótaskylda Björgólfs Thors á tjóni félagsmanna vegna hlutabréfa sem þeir áttu í Landsbankanum þegar hann féll. Í stefnunni er Björgólfur sagður hafa leynt upplýsingum um eignarhald sitt á Landsbankanum til að komast undan reglum um birtingu upplýsinga um viðskipti bankans við hann.
Björgólfur hélt uppi vörnum á vef sínum í gærdag og skrifaði þar meðal annars: \"Störfum hlaðið dómskerfi Íslands þarf nú að bæta á sig duttlungum Vilhjálms Bjarnasonar. Mál sem hann og málsóknarfélag hafa höfðað gegn mér verður væntanlega þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun (í dag).\"
\"Þráhyggja Vilhjálms Bjarnasonar á sér hins vegar lítil takmörk. Með hana að vopni sér hann rangfærslur og svik þar sem sérfróðir rannsakendur sjá ekkert aðfinnsluvert. Það er illt að dómskerfið þurfi að eyða tíma sínum í slíkan málatilbúnað,\" en Vilhjálmur hefur um árabil leitt félagsamtök fjárfesta hér á landi.