Kvartar undan samráðsleysi

Dr. Þór Whitehead prófessor í sagnfræði við HÍ og Sjálfstæðismaður kvartar undan samráðsleysi flokksforystunnar við grasrótina í Sjálfstæðisflokknum og vill að staða flokksins og formannsins sé tekin til umræðu.

Hringbraut bar skrif Dr. Þórs undir stjórnmálaskýrendur sem þekkja til Sjálfstæðisflokksins og sögðu þeir að á næsta landsfundi yrðu meginverkefni fundarins að kjósa flokknum nýjan formann og varaformann í stað Bjarna og Áslaugar Örnu.

Þeir minna á að Dr. Þór er ekki áhrifamaður í flokknum en taka beri mark á því sem hann segir.  

Flokkurinn sé skiptur í þrjár fylkingar um oddvita og forystumenn flokksins. 

Auðvitað hefur oft verið ágreiningur um menn og málefni í Sjálfstæðisflokknum.

Ein öflug fylkingin styður Bjarna og Áslaugu Örnu í sæti formanns og varaformanns. 

Önnur máttlítil fylkingin fylgir Guðlaugu Þór og Kristjáni Þór í sæti varformanns og formanns.

Þriðja fylkingin er máttlaus og tengist áhrifamönnum flokksins úr Suðurkjördæminu og skipa sér um Pál Magnússon.  

Harðar deilur verða á næsta landsfundi og Bjarni og Áslaug Arna sigra naumlega.     

[email protected]