Kvartaði lengi undan verkjum: „Er ég bara kvíða­full mið­aldra kona á breytinga­­­skeiði“

Helena Gylfa­dóttir kvartaði í­trekað undan verkjum í baki við heimilis­lækni sinn en í stað þess að hlusta var henni til­greint að hún væri kvíða­full mið­aldra kona á breytinga­skeiðinu með vefjagigt.

Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins. „Ekki ein mynd af bakinu allt síðasta ár þrátt fyrir kvartanir. Ég fékk kvíða­lyf og svefn­lyf og sagt að vera dug­leg að hreyfa mig. Ég sem hafði í mörg ár stundað mjög mikla úti­vist og hreyfingu, búin að hlaupa hálf mara­þon, erfið fjalla­hlaup bæði hér heima og er­lendis, átti að hreyfa mig og þá myndi allt lagast“ sagði Helena á Face-book.

Einu svörin sem Helena fékk frá læknum voru að þetta væri stoð­kerfis­vandi og því ekkert gert fyrir hana. Á sama tíma var hún sett á hormón til að hægja á breytinga­skeiðinu en eina sem þeir gerðu var að fæða hormóna­næmi brjósta­krabba­meinsins.

„Er ég bara kvíða­full mið­aldra kona á breytinga­­skeiði líkt og læknarnir virðast hafa á­­kveðið fyrir fram?“ segir Helena. Hún var flutt með sjúkra­bíl á bráða­mót­tökuna þann 7. janúar vegna verkja. Þá loksins kom í ljós upp­runi verkjanna sem reyndist vera fjórða­stigs krabba­mein í brjóstum.

Hægt er að lesa frétt Frétta­blaðsins hér.