Helst kvartað yfir draugum og drasli

Það er að mörgu að hyggja við fasteignakaup og sölu á eignum sínum og ágætt að hafa ráð fasteugnasalanna þegar kemur að þessum einum stærstu ákvörðun sem hver maður tekur í lífi sínu, að finna sér nýtt heimili.

Guðrún Antonsdóttir hjá Garún fasteignamiðlun og Ásdís Valsdóttir hjá Húsaskjóli, segja báðar mjög algengt að fólk kvarti undan slæmum þrifum þegar það fær eignir afhentar eftir fasteignakaup. Þær voru gestir í þættinum Afsal í gærkvöld, en þar var meðal annars rætt um þau mál sem kunna að koma upp í kjölfar fasteignaviðskipta.

Reimleikar í húsum er meðal annars nefnt sem tilvik sem komið hefur upp eftir sölu og eins er rætt um hversu mikilvægir ,,góðir” nágrannar eru þegar íbúðir eru keyptar í smærri fjölbýlum. Í þættinum var farið yfir það hvað má skilja eftir eða taka með þegar íbúð er tæmd og spurt hvort eignir fræga fólksins sem fjallað er um á Smartland, seljist almennt betur en aðrar eignir.

Afsal er hægt að nálgast í heild sinni eða í klippum á hringbraut.is, en þátturinn er í umsjá Rakelar Sveinsdóttur, [email protected].