Kvartað undan ósæmilegri hegðun helga hjörvar

Ábendingar um Helga Hjörvar, fyrrverandi þingflokksformann Samfylkingarinnar, sem bárust flokksforystu Samfylkingarinnar árið 2016 og greint var frá á DV.is og Viljanum.is í gær varða meðal annars meinta ósæmilega hegðun Helga gagnvart ungri konu á ráðstefnu Norðurlandaráðs í Helsinki árið 2012. Á þeim tíma var Helgi þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs en konan, sem var á þrítugsaldri, var í hópi ungliða á ráðstefnunni. 

Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar var greint frá atvikinu eftir að Helgi Hjörvar bauð sig fram til formennsku í flokknum árið 2016. Eftir að Helgi tapaði formannsslagnum funduðu trúnaðarmenn í flokknum með honum og réðu honum frá því að taka þátt í prófkjörum og bjóða sig fram til þings. Helgi varð ekki við þeirri beiðni og taldi formaður flokksins á þessum tíma, Oddný Harðardóttir, ekki rétt að þrýsta á Helga að stíga til hliðar. 

Ásakanirnar gegn Helga Hjörvari urðu mjög umtalaðar innan Samfylkingarinnar og voru viðbrögð flokksforystunnar umdeild. Óhætt er að fullyrða að málið hafi sett svip sinn á kosningabaráttuna í Reykjavík. „Konum í kringum framboð Samfylkingarinnar var mjög misboðið,“ segir einn af viðmælendum Stundarinnar sem var viðriðinn kosningabaráttuna. „Þetta eitraði allt,“ segir annar. Fleiri óþægileg mál komu upp hjá Samfylkingunni um svipað leyti og beið flokkurinn algert afhroð í þingkosningunum 2016.

Nánar á

https://stundin.is/grein/8099/kvortun-undan-helga-hjorvari-snerist-um-osaemilega-hegdun-eftir-radstefnu-nordurlandarads/