Kvart­an­ir ekki tekn­ar al­var­lega?

Áslaug Björg­vins­dótt­ir, lögmaður og fyrr­ver­andi héraðsdóm­ari, seg­ir að Sím­on Sig­valda­son dóm­stjóri Héraðsdóms Reykja­vík­ur hafi með um­mæl­um sín­um við Rík­is­út­varpið í gær gefið sterka vís­bend­ingu um að dóm­stóll­inn taki ekki al­var­lega aðfinnsl­ur fjög­urra kröfu­hafa um störf Sveins Andra Sveins­son­ar, sem skipta­stjóra þrota­bús EK1923.

Skip­un Sveins Andra sem skipta­stjóra þrota­bús WOW air hef­ur verið um­deild í ljósi nefndra aðfinnsla. Kvart­an­ir Mjólk­ur­sam­s­söl­unn­ar, Slát­ur­fé­lags Suður­lands, lög­manns­stof­unn­ar BBA Legal og Stjörn­unn­ar ehf. um störf Sveins Andra eru á þá leið að hann hafi ekki upp­lýst kröfu­hafa um mik­inn til­fall­inn kostnað. Fé­lög­in sögðu „með ólík­ind­um út í hversu mik­inn kostnað er búið að leggja án sam­ráðs við kröfu­hafa.“ Sveinn tek­ur 49.600 krón­ur á tím­ann í laun.