Kúrsar tengist þingstörfum beint

Óhætt er að segja að fáar fréttir hafi vakið meiri athygli í dag eða blendnari tilfinningar meðal landmanna en umræða um þá allmörgu þingmenn landsins sem stunda nám samhliða þingmennsku.

Deilt hefur verið um forgang og áherslur. Greint hefur verið frá pirringi sumra þingmanna sem telja ekki eðlilegt að þingmenn verji tíma á skólabekk, þar sem starfið er annasamt. Spurt hefur verið hvort þjóðin hafi sem vinnuveitandi þingmanna heimilað þeim að verja þingtíma sínum í skóla.

Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, sem stundar MBA-nám hefur varið sitt MBA-nám samhliða þingstörfum með því að vísa til þess að nám hennar stangist ekki á við þingmennsku heldur bæti hana.

Þór Saari, fyrrum þingmaður, telur það aftur á móti forkastanlegt fúsk ef þingmenn telji sig hafa tíma fyrir eitthvað annað en þingmennskuna. Krefjandi nám hljóti að bitna á þingstörfum og trúnaði þingmanna við þjóðina.

Róbert Marshall, þingmaður BF, hefur nú svarað fyrirspurn Hringbrautar sem fjallað hefur um málið en Róbert er einn þingmanna á skólabekk.

„Vegna umræðu um þingmenn í námi vil ég segja að síðastliðið haust, eftir að ég lét af þingflokksformennsku, skráði ég mig í kúrsa í náttúru- og umhverfisfræði við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Kúrsarnir sem um ræðir tengjast með beinum hætti störfum mínum sem þingmaður. Í umhverfisnefnd, þingvallanefnd og stjórnarskrárnefnd hefur nám í siðfræði náttúrunnar og landnýtingu dýpkað skilning minn á á viðfangsefninu,“ segir Róbert.

„Ég hef litið á þetta sem hluta af minni vinnu og þetta hefur gagnast mér þar. Um er að ræða fjarnám, og enn sem komið er, hef ég aðeins lokið einu prófi enda hef ég séð að ég ræð mögulega við um það bil eitt fag á hverri stuttönn sem er um 6 vikur, frítími minn hefur ekki boðið uppá meira. Þetta hefur ekkert bitnað á vinnu minni, nema síður sé. Ég á reyndar erfitt með að ímynda mér, árið 2016, að nokkur vinnuveitandi myndi gera annað en að fagna því að starfsmenn reyni að gera sig betri í því sem þeir starfa við,“ segir Róbert.