Kunnir fangar óskuðu nafnleyndar

Þrír fangar, sem kvartað hafa til umboðsmanns Alþingis vegna fangelsismálastjóra, óskuðu eftir því að nafnleyndar yrði gætt við meðferð málsins, eftir því sem lög heimila.
 
Þetta kemur fram bréfi umboðsmanns til fangelsismálastjóra þar sem óskað er eftir upplýsingum, gögnum og skýringa, sem og rökstuddir afstöðu til kvörtunar þriggja fanga frá því seint í nóvember á síðasta ári, en hún er fjórþætt og lýtur meðal annars að því að bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore hafi fengið aðgang að fangelsinu til að ná af þeim myndum. 
 

Fangarnir eru þeir Magnús Guðmundsson, Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson, sem allir hlutu þungan dóm í Al thani-málinu. Mennirnir afplána allir dóm á Kvíabryggju.

Í niðurlagi bréfi umboðsmanns til fangelsismálastjóra, sem dagsett er 31. desember, er vakin athygli á því að fangarnir segja erindi sitt varða viðkvæm mál og því óski þeir nafnleyndar eftir því sem lög eigi við í þeim efnum. Umboðsmaður skrifar í bréfi sínu að lögum samkvæmt eigi umboðsmaður að skýra stjórnvaldi frá efni kvörtunar sem tekin er til meðferðar, nema það geti torveldað rannsókn þess. Kvörtun þessi snúi að upplýsingagjöf í máli sem tilteknir einstaklingar áttu aðild að og að framgöngu fangelsismálastjóra og ummælum hans. Því sé ekki hægt að viðhafa nafnleynd um þá sem standa að kvörtuninni.

Páll Winkel, fangelsismálastjóri hefur ekki viljað tjá sig um málið, en hann hefur frest til 1. febrúar næstkomandi til að svara erindi umboðsmanns.