Kann að leiða til vopnakapphlaups

Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, telur engin ragnarök felast í því þótt vopn verði geymd í löggubílum á höfuðborgarsvæðinu.

Hann segir skoðanakannanir sem gerðar hafi verið á Íslandi mæla stuðning við að lögreglumenn beri vopn við skyldustörf. Dags daglegur vopnaburður almennra lögreglumanna hér á landi sé mun varhugaverðari ákvörðun og sjálfur leggist hann persónulega gegn því.

Hringbraut ræddi við Helga vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins í dag þar sem segir að eftir 2-3 vikur verði búið að koma vopnakössum fyrir í lögreglubíla á höfuðborgarsvæðinu til að stytta viðbragðstíma ef aðstæður kalla á. Helgi telur skrefið að sumu leyti eðlilega þróun í vopnaburði lögreglu.  Ekki sé síður mikilvægt að lögregla búi yfir nákvæmum og nýjum vopn til að auka öryggi. Þjálfun lögreglumanna sé sérlega mikilvæg og hann hafi helst áhyggjur af að henni verði áfátt.

„Spurningin er: Á lögregla að vera með vopn? Flestir játa því. Lögreglumenn úti á landi hafa getað geymt vopn í bílum t.d. á stórum svæðum en það hefur ekki verið þannig á höfuðborgarsvæðinu. Það má færa rök fyrir að það sé eðlilegt skref sem nú er verið að stíga,“ segir Helgi.

Kannanir hafa verið gerðar á viðhorfum Íslendinga, annars vegar til þess að lögregla fái heimild til að geyma skotvopn í bílum og hins vegar hvað Íslendingum finnst um þá hugmynd að almennir lögreglumenn beri dags daglega vopn við skyldustörf. Þær kannanir mæla að sögn Helga að mun færri Íslendingar vilja að lögreglumenn vopnist daglega við skyldustörf en hinir sem áfjáðir eru. 50% landsmanna vilja aftur á móti veita lögreglu heimild til að geyma skotvopn í bílunum. Aðeins þriðjungur þjóðarinnar er að sögn Helga andvígur þeirri hugmynd sem nú er verið að hrinda í framkvæmd á höfuðborgarsvæðinu.

En hvað segir Helgi við þeirri spurningu hvort aukið aðgengi lögreglu að vopnum kunni að auka vopnaburð í undirheimum?

Hann svarar að það sé mikilvæg og áleitin spurning. Í Noregi hafi lögreglumenn sjálfir haldið því fram að aukinn vopnaburður lögreglu geti leitt til „vopnakapphlaups“. Í Noregi beri lögreglumenn ekki vopn við skyldustörf. Nýlega hafi verið tekin ákvörðun um að því verði ekki breytt. Ein sterkustu rökin séu að koma í veg fyrir vopnakapphlaup milli afbrotamanna og yfirvalda.

Helgi segist nýkominn frá Færeyjum en þar séu allir lögreglumenn vopnaðir. Færeyskur lögeglumaður hafi svarað þegar hann spurði hvort nokkur ástæða væri til þess í þessum friðsömu eyjum þar sem glæpir séu mun færri en hér á landi að byssur væru bara búnaður, ef löggan væri ekki með byssu liði færeyska lögreglumanninum eins og hann væri nakinn.

„Við förum vonandi aldrei leið Færeyinga þótt sumir lögreglumenn hér á landi vilji það örugglega,“ segir Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði við HÍ.