Til stendur að leiðrétta mistök í dag eftir að 800 viðskiptavinir Bauhaus á Íslandi voru rukkaðir í tvígang vegna viðskipta sem þeir hafa átt við fyrirtækið sl. 12 mánuði.
Ríkisútvarpið segir frá þessu og segir að mistökin megi rekja til danska færsluhirðisins Nets.
„Mistökin uppgötvuðust fyrir helgi þegar fjölmargir viðskiptavinir sáu skuldfærslur af debet-reikningum sínum sem þeir könnuðust ekki við. Færslurnar voru allar frá Bauhaus. Færsluhirðir Bauhaus er danska fyrirtækið Nets en greiðslurnar fara þó í gegnum íslensku fyrirtækin Borgun og Valitor. Viðskiptavinir Valitor, sem gefur út Visa-kort, voru ekki rukkaðir tvisvar,“ segir í frétt Rúv en heildarupphæð nam á 8. milljón króna.