Jóhanna Björk Sveinbjörnsdóttir sem hefur um árabil verið fjallaleiðsögumaður í Kulusuk og er einnig mannfræðingur segir Íslendinga hafa hingað til lítið sótt í fjallgöngur í Kulusuk þótt flugið sé stutt eða innan við tvo tíma frá Reykjavík. Jóhanna vinnur með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum sem hefur innan sinna raða suma reyndustu fjallagarpa landsins. Sumir þeirra hafa farið nokkrum sinnum yfir Grænlandsjökul svo eitthvað sé nefnt.
Við ræðum við Jóhönnu í kvöld á Hringbraut. Hún segir að Íslendingar séu að uppgötva Kulusuk til fjallaferða og ferðirnar séu ekki ósvipaðar þeim sem farið er um hálendi Íslands. Við ræðum við hana líka um samfélagslegar brotalamir á Grænalandi og hvert samfélagið er í raun og sann komið á árinu 2016.