Skúli: erfiðustu stundir ævinnar

Skúli Mogensen, stofnandi Wow air, segir síðustu 72 klukkustundir einhverjar þær erfiðustu sem hann hafi upplifað á sinni ævi í færslu á Facebook. Taka hafi þurft ákvörðun um framtíð Wow air í ljósi mjög krefjandi aðstæðna.

Hann telji sig hafa gert rétt með því að tryggja að Wow air verði dótturfélag Icelandair Group. „Augljóslega var það ekki upphafleg áætlun mín eða sýn fyrir Wow air, en í ljósi aðstæðna tel ég það besta mögulega niðurstaða til að tryggja framtíð Wow air til lengri tíma,\" segir Skúli.

Nánar á

http://www.vb.is/frettir/skuli-erfidustu-stundir-aevinnar/150764/