Kuldaboli og snjókoma á norðlensku sumri

Nú snjóar á Akureyri og verður Norðurland í greipum kuldabola næstu dagana. Frost var 11 gráður á Grímsstöðum á Fjöllum í nótt. Útlit er fyrir heldur hryssingslega sumarkomu víða um land.

Um þriggja stiga hiti er í Reykjavík núna en frost á Akureyri.

Tæpri viku eftir sumardaginn fyrsta er veðurspá Veðurstofunnar þannig að norðlæg átt verður ríkjandi, 5-13 m/s og dálítil él NA-til, en bjart með köflum annars staðar og kólnar. Norðan 8-15 í dag og snjókoma eða él um landið NA- og A-vert, en hvassari undir Vatnajökli í kvöld.

Heldur hægari í nótt, norðan og norðvestan 8-15 á morgun. Snjókoma eða él N- og A-lands, en annars þurrt að mestu. Frost 0 til 5 stig N- og A-til yfir daginn, en 2 til 7 stiga hiti S-til.

Veðurgæðunum verður því nokkuð misskipt milli suðurs og norðurs, suðrinu í hag.