Kuldi og kafald í kortunum

Hann fer að gnauða og gnýja næstu daga ef marka má heldur kuldalega veðurspá Veðurstofu Íslands sem gerir víða ráð fyrir kafaldsbyl á næstu dögum og talsverðri ofankomu.

Stofan kveður á um austlæga eða breytilega átt, 3-8 en austan 8-15 m/s og snjókomu með köflum sunnan- og vestantil, annars úrkomuliltu veðri. Annars er spáin þessi: Norðaustlægari síðdegis og styttir upp um landið suðvestanvert, en él norðaustantil í kvöld. Norðan 5-13 m/s á morgun en 13-18 á Suðausturlandi, og einnig á Austfjörðum annað kvöld. Él norðantil en bjartviðri syðra. Frost 3 til 13 stig, kaldast NA-til, en um og yfir frostmarki sunnanlands. Yfirleitt frost 1 til 7 stig síðdegis á morgun.