Eitthvað hefur veturinn lesið vitlaust á íslenska almanakið þetta vorið því kuldakastið sem verið hefur á landinu það sem af er sumri virðist ekkert vera á förum. Áfram verður kalt í veðri út þessa viku og vart að hitinn komist upp fyrir fimm gráður.
Þessari langvinnu norðanátt fylgir snjókoma og éljagangur sem ekki einasta gætir við norðurströndina heldur teygir ofankoman sig alla leið að suðurströndinni þegar líða tekur á vikuna og má búast við hvítri jörð á láglendi sunnanlands um og undir næstu helgi.
Ljóst er að mjög hægir á gróðri í tíðarfari með þessu og lesa fróðir menn það úr trjám og runnum að þar brumi knúparnir tveimur til þremur vikum síðar en verið hefur mörg síðustu ár. Það er enda viðvarandi næturfrost alla daga sem teygir sig inn á daginn á einstökum landssvæðum.
Vegir eru greiðfærir eða auðir um suðanaustanvert, sunnan- og vestanvert landið, en á Norðurlandi er hálka á Öxnadalsheiði og hálka og hálkublettir og éljagangur á Norðausturlandi. Þá er hálka, snjóþekja og éljagangur á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, svipað færi er víða á Austurlandi, en gott betur eða skafrenningur á Fjarðarheiði og svipað er ástatt um Oddsskarð. Öxi og Breiðdalsheiði eru sem fyrr ófærar.