Kuldi og bylur víða um land næstu daga

Kuldakastið sem nú einkennir veðurlagið á Íslandi mun að minnsta kosti vara fram í næstu viku - og enda þótt lítillega hlýni á föstudag er ekkert útlit fyrir að veturinn lini eitthvað tök sín á landinu bláa næstu daga.

Búast má við hvassviðri og byl velflesta daga sem fara í hönd og sleppa fæstir ef nokkrir landshlutar undan ofankomu og á stundum skafrenningi sem væntanlega teppir helstu samgönguæðar á landi og líklega einnig á lofti. Þessu veðurlagi fylgir töluverð ofankoma.

Hiti verður alls staðar undir frostmarki og fer yfir 12 stig í byggð og meira inn til landsins, en jafnvel gæti kólnað enn frekar um og upp úr næstu helgi.