Spáð er ört hlýnandi veðri síðdegis og laugardag og má búast við tveggja til sex stiga hita á sunnudag eftir kuldatíðina sem herpt hefur axlir landsmanna á undanliðnum dögum.
Norðaustan éljagangur verður á landinu norðanverðu í land, en bjartviðri sunnan- og suðvestanlands. Þó eru líkur á éljum allra syðst í dag.
Búast má við talsverðri snjókomu norðanlands í kvöld þegar frost herðir til muna og sömu tíð á Vesturlandi á morgun.
Hann snýst svo samám saman í suðrið þegar nær dregur helgi og svo snýst í vestlæga átt annaðkvöld með lítilsháttar snjókomu vestantil og hlánar þar um kvöldið.
Fyrri hlutann á laugardag verður frostið allt að 8 stig, en svo fer hann ört hlýnandi svo sem fyrr segir í suðlægum og síðar vestlægum áttum.
Vegir eru að heita má auðir bæði á Suður- og Suðausturlandi. Á Vesturlandi er sumstaðar hálka til að mynda á Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði en hálkublettir m.a. á Bröttubrekku og Fróðárheiði.
Vetrarfærð er á Vestfjörðum - víðast nokkur hálka, snjóþekja eða hálkublettir og eitthvað um éljagang og skafrenning. Þæfingsfærð og éljagangur er á Hrafnseyrarheiði.
Nokkur hálka eða hálkublettir eru á Norðurlandi vestra og sumstaðar snjóþekja og snjókoma. Á Norðurlandi eystra og Austurlandi er allvíða éljagangur og jafnvel snjókoma og víðast hvar hálka eða snjóþekja og sumstaðar skafrenningur. Þæfingsfærð er á Öxi.