Kúabændur byggja og byggja

Framkvæmdagleði ríkir hjá kúabændum landsins um þessar mundir því víða má sjá byggingakrana á sveitabæjum þar sem verið er að byggja ný fjós, ekki síst á Suðurlandi. Bændur eru einnig að byggja við eldri fjós. 

Á sama tíma fækkar kúabændum í landinu en afurðir aukast því kýrnar eru að mjólka miklu meira en þær gerðu til að mynda fyrir tuttugu árum síðan. Í dag eru tæplega sex hundruð kúabú í landinu.

Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda er ánægð með hvað kúabændur eru duglegir að byggja.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2019190109410