Ks með einleik: ólga á meðal bænda

Ólga er á meðal bænda hér á landi vegna afstöðu Kaupfélags Skagfirðinga til nýs búvörusamnings sem gerir ráð fyrir afnámi mjólkurkvóta, en viðræður um samninginn eru svo að segja á lokametrunum.

Það er á þessari ögurstundu sem forkólfar Kaupfélagsins og sveitarstjórnamenn á svæðinu skera upp herör gegn nýja samningum, en þeir telja fráleitt að afnema mjólkurkvótann, sem er eitt af meginatriðum nýs samnings.

Skagfirðingar, hliðhollir kaupfélaginu á staðnum, hafa skrifað þingmönnum Norðvesturkjördæmis harla harðort bréf, raunar í tveimur útgáfum þar sem íhlutunar þeirra er krafist; fyrra bréfið sem skrifað er á bréfsefni kaupfélagsins og samstaða náðist ekki um á milli þess og sauðfjárbænda í firðinum, var í raun krafa um beina íhlutun, en það seinna, sem bændur skrifuðu ekki undir, er hófstilltara og í raun beiðni um fund um málið.

Ljóst er að bændur í Skagafirði ganga ekki lengur í takti við kaupfélagsvaldið á staðnum - og eru það nokkur tíðindi. Raunar hefur Félag sauðfjárbænda í Skagafirði áréttað opinberlega að það hafi ekki tekið þátt í því bréfi sem var sent þingmönnunum. Þar segir að stjórn félagsins sjái sér ekki fært að skrifa undir beiðni kaupfélagsmanna þar sem samninganefnd sauðfjárbænda sé enn að störfum og stjórnin ekki búin að sjá endanlega niðurstöðu.

Kúabændur virðast sömu skoðunar og sauðfjárbændur í þessum efnum. Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda, segir í samtali við fréttastofu RÚV í dag að afskipti kaupfélagsins séu dálítið óvenjuleg.

Í gær birti svo stjórn Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði yfirlýsingu, þar sem varað er við því að aðrir komi með beinum hætti að samningunum en ríkið og bændur. Þar vilji margir setja sín fingraför á. Athygli vekur að sá sem skrifar undir þessa yfirlýsingu er Rögnvaldur Ólafsson, bóndi í Skagafirði, og fulltrúi Kaupfélags Skagfirðinga í stjórn samtakanna eins og bent er á í frétt RÚv af málinu í dag.

Kaupfélagið er hvergi nefnt á nafn í yfirlýsingunni, en svo virðist sem ekki sé einhugur meðal kaupfélagsmanna.

Virðist því vík milli vina í Skagafirði.