Krýndur þorskur á Alþingishúsið?

Fréttablaðið greinir frá því í kvöld að Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vilji tvö skjaldamerki á Alþingishúsið. Hann lagði fram þingsályktunartillögu er varðar málið, en hann vill sjá tvö skjaldarmerki sem prýddu Alþingishúsið á vígsludegi þess árið 1881 aftur á húsinu. Umrædd merki eru annarsvegar hinn krýnda þorsk Íslands og hins vegar hin krýndu ljón Danmerkur.

„Komandi kynslóðir eiga rétt á því að þekkja söguna og þau mannvirki og kennileiti sem bera henni vitni, þar á meðal Alþingishúsið í upphaflegri mynd.“ segir í greinargerðinni um málið.

Hægt er að lesa nánar um málið á Fréttablaðið.is