Leikrit Shakespears, Ríkharður III var frumsýnt 29.desember sl. á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Sagan um valdagræðgi og illt innræti Ríkharðs III er meira en 400 ára gömul, þessi saga af aðalsbornum krypplingi sem er kaldrifjaður og lævís með takmarkalausa þörf fyrir meiri völd – sá sem myrðir alla í kringum sig sem hann þarf til að verða Konungur Englands. Mesta illmenni leikhússins.
Brynhildur Guðjónsdóttir, leikstjóri mætir í 21í kvöld til Lindu Blöndal en Brynhildur aðlagaði verkið ásamt Hrafnhildi Hagalín. Hjörtur Jóhann Jónsson kemur með Brynhildi en hann leikur Ríkharð og hefur fengið frábæra dóma fyrir. Uppsetningin virðist hafa heppnast æði vel en gagnrýnendur bæði í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu gáfu henni fullt hús stiga – fimm stjörnur.
Leikritið hefst þegar friður er kominn á eftir Rósastríðin. Ríkharður var stríðshetja en allt er dottið í dúnalogn og sviðið er sviðin jörð. Játvarður bróðir Ríkharðs er orðinn konungur og er léttlyndur en okkar maður ætlar ekki að láta þarnar við sitja; friðurinn gerir ekkert annað en að búa til ólgandi stríð í höfðinu á Ríkharði, eins og Brynhildur orðar það í viðtal í kynningarhefti Borgarleikhússins. Hann nær takmarki sínu, verður konungur en það er ekki nóg, átökin í hausnum á honum stöðvast ekki, ekkert fær stöðvað Ríkharð og hans eyðileggingarafl fyrir völd og hefnd.
Fimm leikkonur fara með burðarhlutverkin (fyrir utan Ríkharð). kvenpersónurnar eru dregnar fram, kvennakrafturinn dreginn fram. Fimm kynslóðum stefnt gegn illvirkjanum.
Þýðingin er í höndum Kristjáns Þórðar Hrafnssonar sem setur saman íslenskt afbrigði af bragarhætti skáldsins og heppnast vel upp eins og viðtökur verksins gefa til kynna.
Nánar hér um Ríkharð III í Borgarleikhúsinu.