Kröpp lægð fer yfir verðtryggt fólk

\"Sjö árum eftir að Guð var beðinn að aðstoða Ísland er fólk farið að vera með leiðindi aftur. Við erum rétt að mæta í fyrirpartý þegar alsgáði gæinn ryðst inn og segir öllum að fara að drekka vatn án kolsýru.\"

Þetta eru fyrstu orðin í nýjum pistli Evrópufræðingsins Tryggva Haraldssonar sem skrifar reglulega á hringbraut.is, en að þessu sinni skrifar hann um íslenska krúttkrónuhagkerfið sem þrengir æ meir að íslenskum heimilum: \"Það er helvíti hart að vera ekki búin að ljúka dómsmálum yfir sökudólgum gamla hrunsins þegar hitt byrjar,\" skrifar Tryggvi, sem er að auki menntaður stjórnmálafræðingur - og hann bætir við: \"Við erum ekki einu sinni búin að loka þeim stofnunum sem stofnaðar voru til að gera upp hrunið.\"

Hann hristir hausinn yfir peningastefnunni sem rekin er hér á landi: \"Fyrir allra augum blasir eldgamalt ástand löngu úreltrar peningastefnu sem jafnvel grunnskólanemandi fæddur eftir aldamót sér að er ekki hefðbundnum ríkisborgara í þessu landi boðleg. Fyrir hádegi var frábært að hafa krónuna sem bjargaði öllum fljótt upp úr hruninu en eftir hádegi gengur kröpp lægð yfir verðtryggt fólk með tilheyrandi veseni og ælupest,\" skrifar fræðingurinn.

\"Og þegar einhver gagnrýnir þetta,\" heldur hann áfram \"eða kemur með dæmisögu frá öðrum löndum er viðkomandi skotinn í kaf fyrir það að hafa ekki þekkingu á þessu ótrúlega rússíbanatæki sem býður ekki einu sinni upp á öryggisbelti fyrir það fólk sem neyðist til þess að setjast upp í það.\"