Króötum tókst að stöðva smálánin

Ekki hefur tekist að stöðva smálánafyrirtækin á Íslandi, þótt margir hafi spáð því að ný neytendalög hér á landi myndu leggja þau niður, en þau tóku gildi haustið 2013.

Með nýju lögunum var smálánafyrirtækjunum gert að gera lánshæfismat á öllum lántakendum. Íslensku smálánafyrirtækin komust þó framhjá þessu, því þau fóru að bjóða upp á flýtigjald, sem sagt er tryggja skjóta þjónustu á lánshæfismati hjá sænskum samstarfsaðila. Það fyrirtæki heitir Creditcheck, en á vefsíðu þess er engar upplýsingar að fá um fyrirtækið, aðrar en póstbox í Gautaborg og almennt netfang.

Eyrún Magnúsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, hefur skoðað sérstaklega hvernig króatískum yfirvöldum tókst að stöðva smálánafyrirtækin stuttu eftir að þau hófu starfsemi sína þar í landi árið 2011. Eyrún var viðmælandi þáttarins Ég bara spyr og sagði þar að lykilatriði í breyttum lögum í Króatíu var að smálánafyrirtækjunum var öllum gert að skrá sig sem leyfisskyld lánafyrirtæki. Þessi breyting varð til þess, að fyrirtækin hurfu af markaði.

Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs sagði í þættinum Ég bara spyr að það væri vel framkvæmanlegt fyrir íslensk stjórnvöld að stöðva smálánafyrirtækin. Þar þyrfti fyrst og fremst að koma til samstaða ríkisstjórnarflokkanna, en hún sagðist fullviss um að minnihlutaflokkarnir myndu styðja þær tillögur sem ríkisstjórnarflokkarnir legðu fram í þessa veru. Í fyrra hefðu smálánafyrirtækin komist í umræðu á þinginu, en þá hefðu margir risið upp á afturlöppunum og talið of langt gengið á frelsi fjármálafyrirtækjanna. Það hefði þá helst verið Sjálfstæðisflokkurinn sem hefði mótmælt þeim tillögum.

Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem var einnig gestur í þættinum sagðist viss um að smálánafyrirtækin væru nú þegar að brjóta lög og vísaði þar í ákvæði hegningarlaga og samningalaga. Að sögn Vilhjálms, sagðist hann telja að löggjöfin væri til staðar en nú vantaði að reyna á hana, með því að fara með eitthvað mál fyrir dóm.

 Þátturinn Ég bara spyr er endursýndur á föstudagskvöldum kl.21.30.