Bófum vex kjarkur sé þeim miskunn sýnd

Eru gerðir þeirra stjórnmálamanna sem halda krónunni með öllum ráðum að landsmönnum í samræmi við stjórnarskrá Íslands? Það liggur fyrir að gífurlegar eignatilfærslur hafa átt sér stað í þessu landi langt umfram það sem gerist í öðrum löndum. Á sama hátt liggur það fyrir að íslenska krónan er höfuðorsök þessara tilfærslna. Eignaréttur er friðhelgur á Íslandi. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almennigsþörf krefji. Hafa íslenskir ráðamenn brotið stjórnarskrána og jafnvel með saknæmum hætti?

Ole Anton Bieltvedt ræðir þessa áleitnu spurningu í blaðagrein. Krónan hefur fallið einum fjörutíu sinnum frá árinu 1950. Við hvert gengisfall hafa miklir fjármunir færst á milli manna. Skuldir lántakenda aukast. Líka vegna þeirra okurvaxta sem fylgja þessum ónýta gjaldmiðli krónu. Íslendingar hafa aðgang að öflugasta og traustasta gjaldmiðli heims sem er evran. En staðan er sú að þröngsýnis- og íhaldsöflin halda Íslandi í krónufarinu og leiða ómælt böl yfir landsmenn. 

 

Nánar http://www.visir.is/g/201818019681  

 

[email protected]