Bónus tapar

Miklar breytingar eru að verða á markaðshlutdeild stærstu matvöruverslana landsins. Stóru pólarnir tveir, Bónus og Krónan skipta með sér hlutverkum og er markaðshlutdeild Krónunnar að vaxa upp fyrir þá sem Bónus hefur haft í lengri tíma.  Þetta kom fram í þættinum Þjóðbraut í gærkvöldi þar sem rætt var um breytingar á matvörumarkaði og einnig áhrif Costco. 

Nýjar upplýsingar

Hugbúnaðaryrirtækið Meniga hefur nýverið gert greiningu á matvörumarkaðnum. Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Verslanagreiningar og stjórnarmaður í Samtökum verslunar og þjónustu fór yfir upplýsingarnar í skýrslu Meniga sem sýnir hvernig Bónus er að tapa markaðshlutdeild. Velta í Krónunni hefur aukist á meðan velta í Bónus hefur minnkað og matvörukarfan í Bónus hefur minnkað á meðan karfan í Krónunni vex. 

„Krónan hefur komið með mjög nýjar áherslur inn og það gerðist með nýjum eigendum og nýjum stjórnendum“, segir Kjartan „Þeir hafa verið að svara þessu breytta neyslumynstri í samfélaginu“.

Bónus tapar

„Við sjáum bara svart á hvítu að krónan er að auka markaðshlutdeild sína á kostnað Bónus. Við sjáum á öllu landinu, ef við tökum sex mánaða tímabil frá  október til apríl. Þar sem jólin eru inni og annað að þá fer Bónus niður um átta og hálft prósent í markaðshlutdeild, á sama tíma er Krónan upp um 8,2 prósent\", rekur Bjarki úr skýrslu Meniga. Þetta er þróunin um allt land nema í Vestmannaeyjum.

 

Kjartans segir matvörumarkaðinn líflegan vanalega en núna sé mun meira um sviptingar. Hann segir að dæmi séu um að Bónus hafa farið niður um 20 prósent í veltu þegar Krónan opnaði stóra búð rétt hjá eins og gerðist nýlega í Hafnarfirði.

Haldi þróunin áfram er um að ræða mikla breytingu á íslenskum matvörumarkaði.