Krónan veikist enn - evran yfir 140 krónur

Gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum hélt áfram að veikj­ast á mark­aði í dag. Evra kostar nú 141 krónu, Banda­ríkja­dalur tæp­lega 125 krónur og breskt pund 161 krón­u. 

Þetta er umtals­verð breyt­ing á skömmum tíma, en fyrir innan við hálfu ári kost­aði evran 120 krónur og Banda­ríkja­dalur um 100 krón­ur.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í síð­ustu viku að hækka meg­in­vexti bank­ans úr 4,25 pró­sent í 4,5 pró­sent, og var það meðal ann­ars vegna vænt­inga um meiri verð­bólgu. Hún mælist nú 2,8 pró­sent, en spár gera ráð fyrir að hún hækki nokkuð á næstu miss­erum og verði tölu­vert yfir mark­miði, á bil­inu 3,5 til 5 pró­sent, á næsta ári. 

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-11-13-kronan-veikist-enn-evran-yfir-140-kronur-og-bandarikjdalur-125/